12. október 2024 kl. 7:55
Innlendar fréttir
Veður
Kalt og él norðvestantil
Það verður rólegheitaveður í dag og kalt en norðvestan strekkingur austast fram eftir degi. Él norðvestantil, annars léttskýjað.
Á morgun snýst vindur í norðaustlæga átt, golu eða kalda síðdegis en stinningskalda við suðausturströndina. Áfram verður bjart víða en líkur á éljum suðaustanlands. Fyrri part næstu viku er útlit fyrir austlæga átt, vætu með köflum og hlýnandi veður á landinu.