20. október 2024 kl. 7:38
Innlendar fréttir
Veður

Staðsetning lægðarinnar veldur suðlægum áttum

Yfir Vesturlandi er þaulsetin 981 mb lægð sem stjórnar veðrinu hjá
okkur í dag. Staðsetning lægðarinnar veldur suðlægum áttum en á
Breiðarfirði og Vestfjörðum er fremur hæg breytileg átt. Víða
verður ringing eða súld en norðaustantil á landinu er bjart yfir og
þurrt. Síðdegis koma skil að suðaustanverðu landinu með
norðaustanátt og rigningu en á sama tíma dregur úr vætu vestantil.
Á morgun er útlit fyrir vestan og norðvestanátt með skúrum en er
líður á daginn fer úrkoman yfir í él norðanland