24. janúar 2025 kl. 6:15
Innlendar fréttir
Akureyrarbær

Bæjarstjórn skorar á ríkisstjórn að hefja byggingu hjúkrunarheimilis

Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórnina að hefjast sem fyrst handa við byggingu hjúkrunarheimilis í bænum.

Skilti framan við aðalinngang hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. Byggingin er beinhvít, þríreist steypubygging með gráu þaki og gluggum.  Skiltið er grátt að lit, efst á því er blátt skjaldarmerki Akureyrar með hvítum erni og nafni heimilisins, Hlíð. Þar fyrir neðan stendur ofan frá: Öldrunarþjónusta, Hjúkrunarheimili, Þjónustuíbúðir, Skrifstofur. Neðan við skiltið eru lágir runnar.
Hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri.RÚV

Bæjarstjórnin segir lítið sem ekkert hafa gerst varðandi smíði þeirra 80 hjúkrunarrýma sem samið var um við heilbrigðisráðuneytið árið 2019. Frá þessu er greint á vefmiðlinum akureyri.net.

Bæjarstjórnin samþykkti einróma í vikunni breytingu á aðalskipulagi bæjarins með því að heimila byggingu hjúkrunarheimilis við Þursaholt, norðaustan Krossanesbrautar, auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Breyting á deiliskipulagi var einnig samþykkt í bæjarstjórninni. Engar athugasemdir né umsagnir bárust um tillöguna meðan hún var auglýst.