7. febrúar 2025 kl. 6:46
Innlendar fréttir
Veður

Snjókoma eða slydda í flestum landshlutum í dag

Í dag er spá suðlægri eða breytilegri átt, 10-18 metrum á sekúndu með snjókomu eða slyddu í flestum landshlutum. Hiti verður um og yfir frostmarki.

Í kvöld kólnar með hægari vindi og það dregur úr úrkomu.

Á morgun er spáð vestlægri átt, 5-13 metrum á sekúndu, og éljum en að það stytti upp að mestu síðdegis. Hiti verður um eða undir frostmarki.

Skjáskot af heimasíðu Veðurstofunnar. Þar má sjá Íslandskort og veðurspá á hádegi í dag á helstu svæðum.
Veðurspá á hádegi í dag.Veðurstofa Íslands / Veðurstofa Íslands.