13. febrúar 2025 kl. 6:43
Innlendar fréttir
Veður

Dregur úr vindi og rofar til með kvöldinu

Veðurspá á hádegi 13. febrúar 2025
Veðurspá á hádegi í dag.Veðurstofa Íslands

Langt suður í hafi er spáð talsverðum lægðagangi, en hæðarsvæði norður af Jan Mayen. Í sameiningu valda þessi veðurkerfi austlægum áttum á landinu, allhvössum vindi eða hvassviðri syðst um tíma, en annars mun hægari.

Austanáttin ber með sér úrkomusvæði, sem gefa lítils háttar rigningu eða slyddu með köflum, en helst þó yfirleitt þurr fyrir norðan. Frostlaust á sunnanverðu landinu að deginum, en sums staðar vægt frost nyrðra.

Austan 10-15 m/s og lítils háttar rigning eða slydda, en 15-20 m/s syðst. Hægari vindur og þurrt að mestu um landið norðanvert. Dregur heldur úr vindi og rofar til með kvöldinu. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.