Lægð, sem nálgast landið sunnan úr hafi, stýrir veðrinu hjá okkur í dag og á morgun. Það gengur í austan og norðaustan 10-18 metra með rigningu víða um land. Það verður slydda eða snjókoma í innsveitum og á heiðum á Norðurlandi. Á Suðausturlandi og Austfjörðum verður talsverð rigning. Hiti 1-8 stig og mildast syðst. Lægðarmiðjan verður komin upp að suðausturströndinni í kvöld. Þá lægðir sunnan- og austanlands og dregur úr úrkomumagni.
Það verður rigning víða um land í dag.RÚV / Ragnar Visage
Lægðin heldur áfram til norðurs á morgun og verður dagurinn norðanáttardagur, ýmist með kalda eða strekkingi. Slydda eða snjókoma á köflum á norðanverðu landinu en lítil úrkoma sunnanlands. Kólnar smám saman.