Skjálftahrina er enn í gangi við Grímsey. Yfir 1.400 skjálftar hafa mælst í hrinunni frá því hún hófst snemma morguns á þriðjudag, að sögn Steinunnar Helgadóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofunni.
Stærsti skjálftinn í hrinunni varð í gærmorgun, 5,0 að stærð. Seint í gærkvöld varð skjálfti nærri 4 að stærð.
Steinunn segir virkni hafa róast örlítið en erfitt sé að segja til um framhaldið. „Þetta getur alltaf tekið sig upp aftur.“
Tjörnesbrotabeltið er annað tveggja þverbrotabelta hér á landi. Að sögn Steinunnar er líklegasta skýringin á skjálftunum sniðgengishreyfingar í jarðskorpunni. Þeir eru ekki taldir tengjast kvikuhreyfingum.