18. desember 2022 kl. 15:41
Íþróttir

Di Maria kemur Argentínu í 2-0

Argentínumenn ná ótrúlega vel útfærðri skyndisókn og Angel Di Maria klárar hana með frábæru marki á 36. mínútu. Argentína er 2-0 yfir í úrslitaleiknum og það er verðskuldað. Argentína hefur átt 6 marktilraunir í leiknum gegn engri Frakka. Didier Deschamps þjálfara Frakka er nóg boðið og hann gerir tvöfalda skiptingu á 41. mínútu.