18. desember 2022 kl. 15:12
Íþróttir
Fjórir leikmenn í baráttunni um gullskóinn
Fjórir leikmenn í úrslitaleik HM eru að eltast við markakóngstitilinn. Lionel Messi (Argentínu) og Kylian Mbappé (Frakklandi) hafa báðir skorað fimm mörk til þessa á mótinu. Messi er með þrjár stoðsendingar en Mbappé tvær svo Messi stendur betur að vígi í baráttunni um gullskóinn.
Julian Alvarez (Argentínu) og Olivier Giroud (Frakklandi) hafa báðir skorað fjögur mörk. Hvorugur þeirra á stoðsendingu á mótinu.