22. desember 2022 kl. 22:04
Íþróttir

Man City sló Liverpool út í deildarbikarnum

Fabinho of Liverpool (down) falls on his back as a result of a scuffle between the players of both teams during the Carabao Cup Round of 16 soccer match between Manchester City and Liverpool FC in Manchester, Britain, 22 December 2022.
EPA / EFE/Adam Vaughan

16-liða úrslitum enska deildabikarsins lauk í kvöld með stórleik Manchester City og Liverpool, sem léku þar með bæði sinn fyrsta leik eftir HM hlé.

Erling Braut Haaland skorar nánast í hverjum leik og hefur nú líka skorað gegn Liverpool á leiktíðinni því hann kom City í 1-0 á 10. mínútu. Tíu mínútum síðar náði Fabio Carvalho hins vegar að jafna metin á ný fyrir gestina frá Liverpool í 1-1.

Það var jafnt í hálfleik og seinni hálfleikurinn byrjaði með látum. Ryadh Mahrez kom City aftur yfir þegar hann skoraði á 47. mínútu. 2-1. Liverpool-menn voru hins vegar eldsnöggir að svara fyrir sig og náðu hraðri sókn aðeins mínútu eftir mark Mahrez. Sókninni lauk með sendingu Darwin Nunez á Mohamed Salah sem afgreiddi boltann í markið og jafnaði í 2-2.

En á 58. mínútu sá Nathan Ake til þess að Manchester City fer í 8-liða úrslit og Liverpool er úr leik. Manchester City vann leikinn 3-2.