Afhentu röngum aðila boðskortið á Mastersmótið í golfi
Bandaríski golfarinn Scott Stallings var búin að vera að kanna póstkassann sinn fimm sinnum á dag í nokkra daga í þeirri von um að fá sent til sín boðskort um að spila á Mastersmótinu í golfi á þessu ári. Honum brá því í brún þegar hann fékk skeyti frá alnafna sínum.
„Sæll Scott. Ég heiti einnig Scott Stallings og er frá Georgíu. Konan mín heitir einnig Jennifer. Ég fékk póst í dag með FedEx sem innihelt boðskort á Mastersmótið 6. - 9. apríl 2023. Þetta er flottur pakki sem í var allt sem ég þarf til að mæta og spila á mótinu. Ég held að það sé einhver ruglingur í gangi. Ég spila golf en svo langt fjarri því að vera eins góður og þú.“
Scott sendi alnafna sínum svo mynd af pakkanum sem hann svo birti á samfélagsmiðlum þar sem um tíu milljónir einstaklinga hafa séð færsluna.
Literally had been checking the mailbox five times a day and then I got this random DM yesterday 🫠 pic.twitter.com/yMvUYm3ioK
— Scott Stallings (@stallingsgolf) January 2, 2023