10. janúar 2023 kl. 13:48
Íþróttir

Óvissa með besta varnarmann EM í fyrra

Oscar Bergendahl, línumaður í sænska landsliðinu í handbolta fór meiddur af velli þegar Svíar mættu Serbum í æfingaleik fyrir HM í gærkvöld. Bergendahl meiddist á öxl í leiknum og kom ekki meira við sögu eftir meiðslin.

Oscar Bergendahl
EPA

Óvissa er þar með uppi hjá Svíum um þátttöku Bergendahls á mótinu, en þar á bæ vonar fólk vitanlega það besta. Bergendahl var valinn besti varnarmaður EM í fyrra þegar Svíar urðu einmitt Evrópumeistarar. Þá spilaði hann einnig stóra rullu á línunni í sókn Svía.

Svíar verða í riðli með Brasilíu, Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjum á HM og spila sinn riðil í Gautaborg. Svíar verða svo mótherjar Íslands í milliriðlakeppni mótsins, að því gefnu að bæði lið komist í milliriðil. Það verða þó að teljast afar miklar líkur.