19. janúar 2023 kl. 20:48
Íþróttir

Jón Daði Böðvarsson ekki meira með á tímabilinu

Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson er spilar með Bolton í ensku C-deildinni verður ekki meira með liðinu það sem af er tímabilsins vegna meiðsla. Jón Daði þarf að undirgangast aðgerð á ökkla og verður af þeim sökum ekki meira með Bolton þetta tímabilið.

Jón Daði gekk í raðið Bolton í fyrra og hefur hann skorað átta mörk þetta tímabilið í þeim 27 leikjum sem hafa farið fram. Bolton er þessa stundina í fimmta sæti C-deildarinnar.