26. janúar 2023 kl. 22:24
Íþróttir

Reykjanesbæjarliðin unnu

Þrír leikir voru á dagskrá í Subway deild karla í körfubolta í kvöld.

Njarðvík gerði góða ferð á Sauðárkrók þar sem þeir grænklæddu sigruðu lærisveina Pavel Ermolinskijs í Tindastól. Lokatölur urðu átta stiga sigur, 86-94. Antonio Woods var með 27 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar fyrir heimamenn en það dugði ekki til. Nicolas Richotti var atkvæðamikill hjá Njarðvík og endaði leik með 20 stig, fimm fráköst og átta stoðsendingar. Grikkinn Gkay Gaios Skordillis leiddi sína menn í Grindavík með 24 stig. Hjá Keflavík var Eric Ayala með 27 stig auk þess að leggja til tvær stoðsendingar og þrjú fráköst.

Keflavík sigraði þá granna sína í Grindavík, 93-104.

Stjarnan bar sigurorð af ÍR, 94-76. Þjálfari liðsins, Arnar Guðjónsson, var í leikbanni í kvöld. Hákón Örn Hjálmarsson leiddi ÍR í stigaskorun með 22 stig en Niels Gutenius var stigahæstur Stjörnumanna með 26 stig og bætti þar að auki við 15 fráköstum.