Forseti FIA hættur daglegum afskiptum af Formúlu 1
Forseti alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) Mohammed Ben Sulayem hefur ákveðið að draga úr daglegum afskiptum sínum af Formúlu 1 kappakstrinum. Tilkynning þess efnis kom frá skrifstofu FIA í dag. Samskipti Sulayem við eigendur Formúlu 1 hafa verið stirð undanfarin misseri í ljósi orða sem sá fyrrnefndi hefur látið hafa eftir sér um gildi íþróttarinnar, málfrelsi og skoðanafrelsi ökumanna.
Sulayem hefur sagt að þessi aðgerð sé algerlega í anda þeirra stefnubreytinga sem hann vildi ganga í þegar hann var kosinn til embættis forseta FIA. Í kosningarbaráttu sinni til forseta FIA hafi sagts vilja dreifa ábyrgð á daglegum rekstri til annarra í þeirri endurskipulagningu sem þyrfti að eiga sér stað innan sambandsins.
Ekki er ljóst á þessari stundu hvort að þessi tilkynning komi til vegna þeirra skipulagsbreytinga sem forseti hefur boðað til eða ekki. Hér fyrir neðan má sjá og heyra nánari útskýringar sérfræðinga Sky Sport um þetta mál.
EXPLAINED: Why FIA president Mohammed Ben Sulayem has decided to step back from the day-to-day running of Formula 1 🔊 pic.twitter.com/b2LJZTCwRT
— Sky Sports F1 (@SkySportsF1) February 8, 2023