20. febrúar 2023 kl. 14:38
Íþróttir
Perla Ruth aftur til Selfoss
Perla Ruth Albertsdóttir, landsliðskona í handbolta, hefur samið við Olísdeildarlið Selfoss eftir fjögur ár hjá Fram. Perla Ruth er uppalin hjá Selfossi og lék með liðinu til sumarsins 2019 þegar hún hélt til Fram. Þar hefur hún orðið bæði Íslands- og bikarmeistari og fest stöðu sína í A-landsliði Íslands.
Perla Ruth gerði þriggja ára samning við Selfoss og gengur til liðs við félagið í sumar. Hún er ein af leikja- og markahæstu leikmönnum Selfoss í efstu deild. Hún lék 137 leiki fyrir félagið á sínum tíma og skoraði 457 mörk. Hún var valin Íþróttakona Selfoss bæði 2017 og 2018.