6. mars 2023 kl. 18:10
Íþróttir

Óbólusettur Djokovic dregur sig úr keppni

Serbneski tennisskappinn Novak Djokovic hefur dregið sig úr keppni á Indian Wells Masters mótinu í Bandaríkjunum sökum þess að hann er óbólusettur fyrir Covid-19.

Novak Djokovic á Opna ástralska meistaramótinu í tennis.
EPA

Erlendir ferðalangar þurfa að sýna fram á bólusetningarvottorð, en slíkar kröfur verða í gildi til 10. apríl næstkomandi.

Djokovic hafði beðið um sérstaka undanþágu til að komast inn í Bandaríkin. Nú er orðið ljóst að Djokovic sjálfur hefur dregið úr keppni. Bandaríska tennissambandið hafði áður gefið út að menn þar á bæ væru bjartsýnir varðandi þátttöku Djokovic.

Djokovic missti af ástralska opna árið 2022 vegna þess að hann er óbólusettur. Hann fékk leyfi til að leika á mótinu í ár sem hann sigraði.

Í stað hans kemur georgíski kappinn Nikoloz Basilashvili, en Indian Wells mótið þykir það stærsta fyrir utan fjögur Grand Slam stórmótin.