11. mars 2023 kl. 14:31
Íþróttir

Liverpool tapaði fyrsta leik eftir stórsigurinn

Liverpool heimsótti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að liðið vann erkifjendur sína í Manchester United 7-0 um síðustu helgi. Í þetta skiptið voru sóknarmenn Liverpool þó ekki jafn snjallir fyrir framan markið því liðinu tókst ekki að skora.

Það tókst hins vegar Philip Billing, dönskum leikmanni Bournemouth, á 28. mínútu leiksins en það reyndist eina mark leiksins. 1-0 sigur Bournemouth staðreynd og liðið komið upp í 16. sæti með 24 stig en Liverpool er áfram í því fimmta með 42 stig.

Fimm leikir til viðbótar verða leiknir í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Philip Billing, leikmaður Bournemouth í barráttunni við Harvey Elliot, leikmann Liverpool.
EPA / Vince Mignott