Slegist um miða á oddaleik Vals og Tindastóls
Valur fær Tindastól í heimsókn á Hlíðarenda kl. 19:15 á fimmtudagskvöldið í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta. Ljóst er að gríðarlegur áhugi er á leiknum og að færri munu komast að en vilja.
Valur greindi frá því á Facebook-síðu sinni hvernig miðasölunni yrði háttað en þar kom fram að forsala miða fyrir stuðningsfólk með ársmiða og stuðningsaðila á póstlista fór fram klukkan 14:00 í gær. Karfan.is greinir frá því að þeir miðar hafi selst upp á aðeins fimm mínútum.
Í færslu körfuknattleiksdeildar Vals kemur fram að almenn miðasala hefjist svo í dag, miðvikudag, klukkan 14:00, svo framarlega að einhverjir miðar verði eftir. Jafnframt kemur fram að þeir miðar sem eyrnamerktir séu Tindastóli verði seldir af þeim sjálfum. Leikurinn verður fimmtudagskvöld klukkan 19:15.