21. júní 2023 kl. 19:03
Íþróttir
Frjálsar
Íslandsmet í 4x100 metra hlaupi
Evrópubikarinn í frjálsum íþróttum hélt áfram í dag en lið Íslands er í 14. sæti af 16 í annari deild eftir daginn. Þrjú neðstu liðin falla niður í þriðju deild og Ísland því í fallsæti sem stendur.
Sveit Íslands sló Íslandsmetið í 4x100 m hlaupi karla þegar hún hljóp á tímanum 40,27 sekúndum en gamla metið var 40,40 sekúndur. Sveitina skipuðu þeir Gylfi Ingvar Gylfason, Kristófer Þorgrímsson, Dagur Andri Einarsson og Kolbeinn Höður Gunnarsson. Kolbeinn var einnig í sveitinni sem átti gamla Íslandsmetið.
Hlaupið skilaði sveitinni fjórða sæti í sínum riðli en bestum árangri íslensku keppendanna í dag náði Guðni Valur Guðnason í kringlukasti þar sem hann varð þriðji.
Keppni lýkur á morgun en öll úrslit má finna hér.