22. júní 2023 kl. 19:12
Íþróttir
Frjálsar

Andrea sló Ís­lands­met en Ísland féll

Íslenska landsliðið í frjálsíþróttum lauk þátttöku sinni í Evrópubikarnum í dag. Ísland hafnaði í 14. sæti af 16 löndum í annarri deild og féll þannig í þriðju deild.

Andrea Kolbeinsdóttir sló Íslandsmet í dag í 3000 metra hindrunarhlaupi. Andrea hljóp á tímanum 10:08,85 mínútum en hún átti einnig gamla metið. Það var frá árinu 2018 og var tíminn þar 10:21,26 mínútur.

Andrea KolbeinsdóttirFrjálsíþróttasamband Íslands / Marta Siljudóttir

Öðrum íslenskum keppendum gekk ekki nægilega vel í dag og endaði liðið 37 stigum frá öruggu sæti en ásamt Íslandi féllu Moldóva og Lúxemborg einnig. Ungverjaland, Úkraína og Litháen enduðu í þremur efstu sætum deildarinnar og fara því upp í efstu deild.