28. júní 2023 kl. 21:20
Íþróttir
Fótbolti

Bræður á skot­skón­um í sigrum Fram og KR

Tveimur leikjum var að ljúka í Bestu deild karla. Í Úlfarsárdal vann Fram 3-1 sigur á HK og í Vesturbænum höfðu KR-ingar betur gegn Keflavík, 2-0.

Framarar voru í fallsæti áður en flautað var til leiks þar sem ÍBV komst upp fyrir þá með sigri sínum á KA fyrr í dag. Þeir fengu víti á 38. mínútu þegar Ahmad Faqa, varnarmaður HK, fékk fyrirgjöf Tiago í höndina. Fred skoraði örugglega úr vítinu og heimamenn leiddu í hálfleik, 1-0.

Orri SigurjónssonRÚV / Mummi Lú

Á 55. mínútu jafnaði Atli Hrafn leikinn fyrir HK með skalla af stuttu færi en það tók Framara einungis um mínútu að komast yfir á nýjan leik. Þar var að verki Guðmundur Magnússon en hann skoraði einnig með skalla. Á 62. mínútu kom Orri Sigurjónsson Fram í 3-2 þegar hann ætlaði að öllum líkindum að gefa fyrir markið en boltinn sveif yfir Arnar Frey Ólafsson í marki HK. Ahmad Faqa minnkaði muninn á 87. mínútu eftir hornspyrnu en nær komustu gestirnir ekki.

Í Vesturbænum var það bróðir Orra, Atli Sigurjónsson, sem skoraði fyrra mark KR gegn Keflavík en það kom undir lok fyrri hálfleiks. Ægir Jarl Jónasson bætti svo við öðru markinu á 77. mínútu og KR-ingar unnu þægilegan sigur á lánlausum Keflvíkingum sem sitja á botni deildarinnar með 8 stig.

Atli SigurjónssonRÚV / Mummi Lú

KR lyfti sér upp í fimmta sæti deildarinnar með 18 stig, Fram er í því áttunda með 14, tveimur stigum á eftir HK sem er í sjöunda sæti.