Baldvin Þór Magnússon bætti í gær Íslandsmetið í 3000 m hlaupi þegar hann hljóp á tímanum 7:49,68 mínútur. Hann sló metið á Watford Grand Prix mótinu í Bretlandi en tíminn skilaði honum þriðja sætinu.
Hlynur Andrésson átti gamla metið en tími hans var 7:54,72 mínútur. Baldvin á einnig metið innanhúss, tíminn þar er 7:47,51 mínútur.
Baldvin Þór MagnússonFrjálsíþróttasamband Íslands / Marta Siljudóttir