10. ágúst 2023 kl. 21:07
Íþróttir
Fótbolti

Stórt tap Breiða­bliks í Bosníu

Fyrri leikur Breiðabliks gegn bosníska liðinu Zrinjski í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta fór fram ytra í kvöld. Slæmur fyrri hálfleikur reyndist dýrkeyptur fyrir Blika því heimamenn unnu 6-2.

Bosníska liðið skoraði strax á annarri mínútu leiksins og staðan var orðin 3-0 eftir hálftíma. Staðan versnaði svo fyrir Breiðblik því Viktor Karl Einarsson fékk að líta sitt annað gula spjald skömmu síðar og Blikar orðnir manni færri. Heimamenn nýttu sér liðsmuninn og staðan í hálfleik var 5-0.

Zrinjski skoraði sjötta mark sitt á 55. mínútu en Breiðablik skoraði tvö sárabótarmörk á 63. og 74. mínútu en þar voru að verki Anton Logi Lúðvíksson og Gísli Eyjólfsson. Það er þó ljóst að verkefni Blika í heimaleiknum verður erfitt en sá leikur fer fram eftir viku.