Ólympíudraumur íslenska karlalandsliðsins í körfubolta er úr sögunni eftir tap gegn Úkraínu á fyrsta stigi Ólympíuforkeppninnar í dag, 82-69. Leikið er í Tyrklandi en Ísland tapaði fyrir heimamönnum í gær 99-72 á meðan Úkraína vann Búlgaríu. Tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í undanúrslit forkeppninnar.
Tyrkland burstaði Búlgaríu 66-104 og þar með varð ljóst að Tyrkland og Úkraína eru örugg áfram á næsta stig forkeppninnar og Ísland og Búlgaría leika um þriðja sæti riðilsins á þriðjudag. Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 18 stig.