Fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lauk í kvöld með 1-0 sigri Manchester United á Wolverhampton Wanderers.
Það voru gestirnir í Wolves sem fengu betri færi í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik þó markalaus. Enn héldu Úlfarnir að sækja en það voru þó heimamenn sem komu boltanum í netið. Það gerði varnarmaðurinn Raphael Varane á 76. mínútu eftir laglegt samspil og fleiri urðu mörkin ekki.
Raphael Varane fagnar marki sínuEPA / Peter Powell