15. ágúst 2023 kl. 18:07
Íþróttir
Fótbolti

Elín Metta til liðs við Þróttara

Elín Metta Jensen hefur tekið fótboltaskóna af hillunni og mun spila með liði Þróttar í Bestu deild kvenna. Elín, sem á að baki 62 landsleiki þar sem hún skoraði sextán mörk, mun fylla skarð Ólafar Sigríðar Kristinsdóttur. Ólöf heldur út í nám til bandaríska háskólans Harvard og spilar ekki meira í sumar.

Mummi Lú

Elín Metta hafði áður hætt í fótbolta en í sumar æfði hún með karlaliði Harðar á Vestfjörðum. Þá hafði hún fyrr á árinu æft með Stjörnunni.

Framherjinn er 28 ára gömul og semur við Þrótt út næsta tímabil. Þróttur er sem stendur í baráttu í efri hluta deildarinnar. Breiðablik og Valur eru jöfn að stigum í fyrsta sæti með 33 stig, en Þróttur er í þriðja með 28 stig. Leikið verður í úrslitakeppni í fyrsta sinn í ár í deildinni.