28. ágúst 2023 kl. 15:13
Íþróttir
Fótbolti

Freyr bjóst við meiri athygli vegna Gylfa

Freyr Alexandersson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Lyngby, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að fréttirnar um að Gylfi Sigurðsson væri búinn að gera munnlegt samkomulag við félagið hafi fengið mikla athygli. Hann bjóst reyndar við enn meiri athygli segir hann í samtali við danska fjölmiðliðinn Bold.dk.

Freyr segir að hann hefði reiknað með að fjölmiðlar myndu fjölmenna á æfingu liðsins þegar munnlega samkomulagið var í höfn en enginn kom. Freyr reiknar þó með enn meiri athygli þegar viðræður þokast meira.

epa06575413 Freyr Alexandersson, head coach of Iceland, during their 2018 XXIV  Women Soccer Algarve Cup soccer match with Japan held at Bela Vista Stadium in Parchal, Portugal, 02 March 2018.  EPA-EFE/FILIPE FARINHA
LUSA / EPA-EFE