28. september 2023 kl. 9:45
Íþróttir
Fótbolti

Pétur framlengir við Íslandsmeistarana

Pétur Pétursson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Val og verður því áfram þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Pét­ur hef­ur verið þjálf­ari Vals frá því í haustið 2017 og hef­ur á þeim tíma stýrt liðinu til fjög­urra Íslands­meist­ara­titla og eins bikar­meist­ara­titils.

Pétur á langan knattspyrnuferil að baki, hann var atvinnumaður um árabil og lék 41 landsleik með Íslandi á ferlinum. Hann setti á sínum tíma markamet í efstu deild á Íslandi þegar hann skoraði 19 mörk fyrir ÍA. Það met stendur enn þó það hafi verið jafnað nokkrum sinnum.

Pétur Pétursson, þjálfari Vals, fyrir bikarúrslitaleik Vals og Breiðabliks 2022
RÚV / Mummi Lú