ÍBV stúlkur áfram í Evrópu
Kvennalið ÍBV í handbolta vann í kvöld einvígið gegn Colégio de Gaia í Evrópubikar kvenna í handbolta. ÍBV vann einvígið samanlagt 53-50 en leikur kvöldsins tapaðist með einu marki. Fyrri leikurinn vannst 27-23 og stóð ÍBV því vel að vígi fyrir leik kvöldsins. Leikur kvöldsins tapaði 27-26 en spilað var í Portúgal. Staðan í hálfleik var 12-9 heimakonum í vil.
Sara Dröfn Ríkharðsdóttir og Sunna Jónsdóttir leiddu sóknarleik ÍBV í kvöld með sex og fimm mörk. Þær portúgölsku leiddu á tímabili með fimm mörkum en góður endasprettur Eyjakvenna tryggði þeim að lokum farseðilinn í næstu umferð.
Þá fór einn leikur fram í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Haukar sigruðu Fram 25-30 þar sem Elín Klara Þorkelsdóttir fór á kostum og skoraði 15 mörk fyrir Hauka.