11. október 2023 kl. 22:02
Íþróttir
Körfubolti

Valsmenn unnu 36 stiga sigur á nýliðunum

Valur-Þór Þorlákshöfn apríl 2023
Körfubolti karla
Kristófer Acox
RÚV / Mummi Lú

Önnur umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta hófst í kvöld með einum leik. Valsmenn unnu risasigur á nýliðunum Hamri, 100-64. Eftir jafnan fyrsta leikhluta stungu Valsmenn af í öðrum fjórðungi, þar skoraði Valur 29 stig gegn aðeins sjö stigum Hamars og staðan í hálfleik var 56-31.

Valur hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni en Hamar tapað báðum sínum leikjum og er án stiga.