14. október 2023 kl. 20:11
Íþróttir
Handbolti
FH gerði jafntefli í Evrópubikarnum
FH gerði jafntefli við Partizan frá Serbíu 34-34 í annarri umferð Evrópubikarkeppni karla í handbolta í Hafnarfirði í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna og fer sá síðari fram í Serbíu eftir viku.
FH var yfir 34-31 en Serbarnir skoruðu síðustu þrjú mörk leiksins og jöfnuðu þegar 5 sekúndur voru eftir. Staðan var jöfn í hálfleik 15-15. Jóhannes Berg Andrason var markahæstur FH með 9 mörk og Daníel Freyr Andrésson varði 14 skot í markinu.
Hin íslensku liðin unnu leiki sína í þessari keppni í dag, ÍBV og Valur.