21. október 2023 kl. 13:30
Íþróttir
Fótbolti

Liverpool á toppnum eftir sigur í grannaslag

Enska úrvalsdeild karla í fótbolta hófst aftur í dag eftir landsleikjahlé. Liverpool og Everton mættust í grannaslag Liverpoolborgar en það var fyrsti leikur níundu umferðar. Leikar enduðu 0-2 en Mohamed Salah skoraði úr vítaspyrnu á 75. mínútu eftir að boltinn fór í hönd varnarmannsins Michael Keane. Ashley Young fékk tvö gul spjöld og þar með reisupassann undir lok fyrri hálfleiks.

Mohamed Salah fagna marki sínu fyrir Liverpool gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta 22. apríl 2023.
EPA

Yfirburðir Liverpool voru þó nokkrir en liðið var 78% með boltann og átti þrettán skot gegn fjórum skotum Everton. Þeir bláliðuðu mynduðu varnarmúr í dag. Undir lok leiks geystist sóknarlína Liverpool upp völlinn. Darwin Nunez fann Mohamed Salah í teignum sem skoraði af öryggi á 97. mínútu.

Liverpool er nú í efsta sæti um stund með tuttugu stig, jafnt Arsenal og Tottenham. Lundúnaliðin tvö eiga hins vegar leik til góða. Arsenal mætir Chelsea í dag og Tottenham mætir Fulham á mánudaginn.