Texas Rangers meistarar í hafnabolta
Úrslitakeppninni í MLB hafnaboltadeildinni lauk í nótt. Í Phoenix mættust Arizona Diamondbacks og Texas Rangers í fimmta úrslitaleiknum. Texas hafði haft talsverða yfirburði fram að leiknum og það breyttist lítið í nótt. Texas vann 5-0 og vann einvígið 4-1 og er meistari.
Þetta er í fyrsta sinn sem Texas Rangers, sem hét raunar Washington Senators til 1971, verður meistari í hafnaboltanum vestanhafs. Fáir bjuggust þó við að þessi tvö lið myndu mætast í úrslitum því þau áttu bæði misjafna leiktíð. Bæði byrjuðu í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, sem bestu liðin sleppa við, og er það í fyrsta sinn í sögu World Series sem tvö lið sem keppa í fyrstu umferð mætast svo í úrslitum.
World Series, sem úrslitaviðureignin nefnist, er ein elsta íþróttakeppni heims og hefur verið haldin alla tíð frá árinu 1903. Forverar World Series hafa hins vegar verið við lýði allt frá 1857.