6. nóvember 2023 kl. 12:37
Íþróttir
Aðrar íþróttir

Badmintonlandsliðið í 2. sæti á EM smáþjóða

Landslið Íslands í badminton keppti um helgina á Evrópumóti smáþjóða á Möltu. Óhætt er að segja að liðið hafi staðið sig vel því það vann allar viðureignir sínar, nema gegn Kýpur sem stóð uppi sem sigurvegari. Sá sigur vannst á einum leik, 3-2, og því fékk Ísland silfrið.

Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er sérstakt Evrópumót smáþjóða. Ísland sá um skipulagningu mótsins ásamt Möltu, Kýpur og Mónakó en auk þeirra kepptu Grænland, lið frá eynni Mön, Gíbraltar og Liechtenstein á mótinu.

Lið Íslands sem keppti á Evrópumóti smáþjóða í badminton í nóvember 2023.
Badmintonsamband Íslands