6. nóvember 2023 kl. 22:09
Íþróttir
Fótbolti

VAR í aðahlutverki í leik Tottenham og Chelsea

Tottenham og Chelsea mættust í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Chelsea vann 1-4 á heimavelli Tottenham en það er óhætt að segja að VAR myndbandsdómgæslan hafi leikið stóran þátt í leiknum.

Varnarmaður Tottenham og Argentínu í fótbolta, Christian Romero, fylgist með dómaranum Michael Oliver er Oliver lítur á VAR myndbandskjáinn. Romero fékk rautt spjald.
EPA

Romero fylgist með dómaranum Oliver og VAR skjánum.

Tottenham komst yfir á 6. mínútu er Svíinn Dejan Kulusevski átti skot sem fór í varnarmann og lak inn í markið. Á 21. mínútu skoraði Raheem Sterling mark sem var dæmt af með VAR þar sem boltinn fór í hönd Sterling.

Nokkrum mínútum síðar varð svo uppi fótur og fit. Moses Caicedo skoraði fyrir utan teig en markið stóð ekki vegna rangstöðu. Í stað þess var dæmd vítaspyrna og rautt spjald á Cristian Romero, varnarmann Tottenham. Cole Palmer skoraði úr vítinu og tólf mínútum var bætt við fyrri hálfleik.

Í byrjun seinni hálfleiks fækkaði enn í röðum Tottenham en Udogie fékk þar sitt seinna gula spjald. VAR skoðaði einnig þann dóm en gult spjald varð þó niðurstaðan. Nicolas Jackson skoraði svo á 75. mínútu eftir undirbúning Raheem Sterling. Nokkrum mínútum síðar skoraði svo Eric Dier mark á 78. mínútu sem einnig var dæmt af með VAR. Jackson gulltryggði svo sigurinn með tveimur mörkum í uppbótartíma.

Tottenham er sem fyrr í öðru sæti en Chelsea er um miðja deild í 10. sæti eftir sigurinn.