Barcelona er komið áfram í Meistaradeild kvenna í fótbolta eftir 7-0 sigur gegn Rosengard í kvöld. Barcelona er með fullt hús stiga í A-riðli eftir fjórar umferðir og er öruggt áfram. Benfica er með sjö stig og Eintracht Frankfurt fjögur en þau lið gerðu 1-1 jafntefli fyrr í dag. Rosengard er enn án stiga.
Fótboltakonan Salma Paralluelo í leik með Barcelona gegn Rosengard í Meistaradeild Evrópu. Í bakgrunni sést íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir.EPA / Quique Garcia
Salma Paralluelo skoraði tvívegis gegn Guðrúnu Arnardóttur og liðsfélögum hennar í Rosengard í kvöld.
Í B-riðli er Lyon í fínum málum þrátt fyrir að hafa misst 0-2 forystu gegn Brann niður í 2-2 jafntefli í dag. Lyon er með 10 stig og Brann 7.
Slavia Prag og St. Pölten, sem bæði eru með 1 stig, áttu einnig að mætast í kvöld en sökum skotárásarinnar í Prag í dag var leiknum frestað.