Albert Guðmundsson skoraði eina mark Genoa í 1-1 jafntefli gegn Bologna í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Albert skoraði beint úr aukaspyrnu á 20. mínútu en markið má sjá hér.
Bologna sótti mun meira í leiknum en Josep Martínez, í marki Genoa, varði frábærlega trekk í trekk. Það leit allt út fyrir að Genoa myndi hirða stigin þrjú en Lorenzo De Silvestri tókst að bjarga stigi fyrir heimamenn þegar hann kom boltanum í netið á fimmtu mínútu uppbótartíma. Genoa er nú í tólfta sæti deildarinnar með 21 stig en Bologna er í því fimmta með 32 stig.
Albert hefur nú skorað átta mörk á leiktíðinni og lagt upp tvö.