De Bruyne magnaður í endurkomu sinni
Manchester City vann Newcastle 2-3 í í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Portúgalinn knái Bernardo Silva kom bláklæddum gestunum yfir með glæsilegri afgreiðslu úr teignum á 26. mínútu. Heimamenn í Newcastle sneru taflinu sér í vil með tveimur mörkum á þriggja mínútna kafla. Alexander Isak jafnaði metin á 35. mínútu en Anthony Gordon kom liðinu yfir á 37. mínútu.
Belginn Kevin de Bruyne sneri til baka eftir langa fjarveru vegna meiðsla í dag. Hann jafnaði metin eftir stoðsendingu frá Rodri á 74. mínútu. Það var svo norska ungstirnið Oscar Bobb sem innsiglaði endurkomu City í uppbótartíma leiksins eftir stoðsendingu de Bruyne.
City er þar með tveimur stigum á eftir Liverpool sem er í toppsætinu. City er í öðru sæti en Newcastle er nú í tíunda sæti deildarinnar.