Ísland kreisti fram sigur gegn Svartfjallalandi
Umfjöllun: Ómar Ingi mætti til leiks á EM
Ísland vann sinn fyrsta leik á EM í handbolta eftir sigur gegn Svartfjallalandi, 31-30. Ísland leiddi með tveimur mörkum í hálfleik. Ómar Ingi Magnússon skoraði sjö mörk og lagði upp fimm mörk. Svartfellingar höfðu möguleika á að jafna undir lok leiks en það gekk sem betur fer ekki. Stigin eru afar kærkomin en fram undan er úrslitaleikur gegn Ungverjum um sæti í milliriðli.
Svartfellingar byrjuðu með boltann og reyndu sirkusmark í fyrstu sókn. Boltinn fór langt, langt, langt yfir. Fyrsta skot okkar geigaði en Aron Pálmarsson skaut fram hjá. Svartfellingar geystust fram og áttu skot sem fór í andlit Viktors Gísla og Vujovic fékk tveggja mínútna brottvísun. Líkt og í fyrsta leiknum var því enn markalaust fyrst um sinn.
Liðin skiptust á höggum
Svartfellingar skoruðu fyrsta mark leiksins en Ísland geystist fram í hraða sókn. Boltinn barst til Óðins Þórs í hægra horninu sem kom inn í liðið í stað Sigvalda í dag. Hann jafnaði metin og staðan var jöfn eftir fjögurra mínútna leik, 1-1. Liðin héldu áfram að skiptast á höggum í upphafi leiks.
Boltinn barst aftur og aftur til Óðins en því miður fór aðeins eitt af hans fyrstu fjórum skotum í netið.
Loks kom góði kaflinn
Þá kom góði kaflinn er Ísland fór úr 4-3 í 4-6. Aron hélt uppteknum hætti frá Serbíuleiknum og spilaði áfram glimrandi varnarleik. Hann stal boltanum og kom honum til Elvars sem reis upp og smellti boltanum inn. Elvar á þetta til þegar hann fleygir sér fram með sókninni. Skömmu síðar stal Aron honum aftur. Fyrirliðinn var þar að sýna hvers hann er megnugur á þessum enda vallarins.
Þá var komið að Elliða til að setja eitt af sínum miðjuskotum sem hann fullkomnaði í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum. Hann þyrfti að hafa samband við Hugverkastofuna sem allra fyrst.
Á þessum kafla gekk nær allt upp. Viktor varði eða skot Svartfellinga geigu. Það skiptir engu að við vorum einum færri eftir tveggja mínútna brottvísun Elvars. Staðan var orðin 5-10 og allt lék í lyndi. Svartfellingar eru hins vegar engir aukvisar þrátt fyrir að vera taldir slakasta liðið í riðlinum. Þeir minnkuðu muninn í 8-10.
Stiven kom inn af bekknum og var ekki lengi að setja mark sitt á mótið. Hans fyrsta mark á stórmóti og megi þau verða mun fleiri.
Ómar Ingi steig upp í sóknarleiknum ef miðað er við Serbíuleikinn. Hann var mun meira ógnandi og opnaði fyrir liðsfélaga sína trekk í trekk. Munaði þar um að Arnar Freyr blokkeraði vel á línunni og það frelsaði okkar menn. Hann var með þrjú mörk og fjórar stoðsendingar þá þegar í hálfleik.
Vuko Burozan skoraði þá með einu fastasta skoti sem sést hefur á handboltavelli. Boltinn var nærri haus Viktors og hefði hann sennilega farið af ef í haus færi.
Ísland leiddi 15-17 í hálfleik.
Einhvern tímann er allt fyrst
Það er óhætt að segja að seinni hálfleikur hafi byrjað illa. Skot Ómars geigaði, Svartfellingar skoruðu og Elliði fékk tvær mínútur. Staðan var því 16-17 en Sigvaldi var hvergi banginn og skoraði af öryggi úr horninu. Þá tók Björgvin Páll til sinna ráða en hann varði sitt fyrsta skot á mótinu með X vörslu.
Skömmu síðar skoraði Gísli Þorgeir sitt fyrsta mark á mótinu og kom Íslandi í 16-19.
Nebojsa Simic í markinu gerði okkur lífið leitt í leiknum en hann virtist vita upp á hár hvað hornamenn okkar ætluðu sér. Bjarki Már, Sigvaldi og Óðinn lentu allir í honum. Það munaði um minna en flest marka okkar komu úr horninu í leiknum gegn Serbíu.
Björgvin Páll átti glæsilega tvöfalda vörslu skömmu síðar og Íslendingar í höllinni trylltust. Staðan var skömmu síðar orðin 19-21 Íslandi í vil eftir 39 mínútna leik. Svartfellingar stigu á bensíngjöfina og jöfnuðu metin í 21-21 skömmu síðar. Þá tók Ómar Ingi til sinna ráða og prjónaði sig í gegn. Útlitið var orðið gráleitt, ef þá ekki svart, en Ómar og Aron skoruðu tvö mörk og Ísland leiddi 22-24.
Á þessum kafla náði Ísland ekki að slíta sig frá Svartfellingum. Tæknifeilar reyndust okkur dýrkeyptir og forskot Íslands virkaði ansi brothætt. Ísland náði forskot en Svartfjallaland jafnaði ítrekað. Staðan var 28-28 þegar fimm mínútur voru eftir. Svartfjallaland náði 5-1 kafla á þessum tímapunkti.
Skipting Svartfellinga reddaði málunum
Svartfjallaland komst yfir í stöðunni 29-28 en Gísli Þorgeir jafnaði. Ómar Ingi skoraði síðan ótrúlegt mark. Staðan var jöfn, 30-30 þegar haldið var í lokamínútuna.
Það virtist allt stefna í annað jafntefli Íslands á EM. Svartfellingar gerðust þá sekir um ógurleg mistök en þeir gerðu feil í skiptingu. Við það fékk Ísland boltann og Gísli Þorgeir skoraði. Svartfellingar fengu færi á að jafna í 31-31 en lokaskot þeirra var aumt og endaði í hrömmum Björgvins Páls.
Fögnum sigri þrátt fyrir allt
Því gat íslenska liðið fagnað sigri. Burtséð frá öllu öðru hefur Ísland haft betur á úrslita augnablikunum leikjanna tveggja.
Færasköpunin í dag var ágæt en færanýtingin afleit. Það dugar ekki ef fram er haldið á mótinu.
Ef við förum í milliriðil mætum við mun sterkari mótherjum en Svartfellingum. Það jákvæða er að við fengum Ómar Inga inn í mótið. Hann skoraði sjö mörk úr níu skotum og var með fimm stoðsendingar. Auk þess skapaði hann tíu færi. Aron Pálmarsson hafði orð á því eftir leik að á eðlilegum degi hefði liðið skorað fjörtíu. Í það minnsta fóru ansi mörg færi í súginn úr hornunum.
Nú eigum við íþróttamann ársins, Gísla Þorgeir, inni. Leikur íslenska liðsins hefur verið afar kaflaskiptur í þessum tveimur leikjum hingað til. Það er alltaf eins og við séum bara tveimur slæmum ákvörðunum frá því að lið vinni upp forskot okkar á svipstundu.
Þetta var óþarflega tæpt undir lokin en við tökum stigin tvo úr þessum leik. Ungverjar bíða okkar á þriðjudaginn. Þá kemur í ljós úr hverju 2024 útgáfan af Íslandi er gerð.
JPÁ
Ísland vinnur!
Björgvin Páll Gústavsson ver lokaskot Svartfellinga og Ísland vinnur eins marks sigur, 31-30!
Nánari umfjöllun, viðtöl og fleira væntanlegt.
31-30
Það er skammt eftir og spennan er ógurleg. Gísli Þorgeir skoraði rétt í þessu og kom okkur í 31-30.
Leiðum með einu þegar skammt er eftir
Við erum einu marki yfir, 26-27, þegar átta mínútur lifa leiks. Björgvin Páll varði rétt í þessu mikilvægt skot.
Ómar Ingi að stíga upp
Ómar Ingi er að stíga upp og Ísland er komið þremur mörkum yfir, 22-25.
Ómar er nú kominn með sex mörk en hann hefur auk þess gefið fjórar stoðsendingar. Þá er hann með tíu sköpuð færi.
Ísland leiðir með einu
Svartfellingar hafa átt ágætis kafla síðustu mínútur. Aron Pálmarsson braust í gegn og kom liðinu í 22-23 forskot. 43 mínútur eru liðnar.
Einhvern tímann er allt fyrst
Ísland leiðir 16-19 en Björgvin Páll varði sitt fyrsta skot á mótinu og Gísli Þorgeir skoraði sitt fyrsta mark.
Ísland leiðir í hálfleik
Sóknarleikurinn hefur verið flæðandi ef miðað er við fyrsta leikinn. Ísland leiðir með tveimur mörkum í hálfleik, 15-17. Ísland náði mest fimm marka forystu í stöðunni 5-10.
Elliði er markahæstur okkar manna með fjögur mark en næstur þar á eftir er Ómar Ingi á eftir með þrjú. Viktor Gísli er með 25% markvörslu.
Sigvaldi í slána
Eftir langa sókn Íslands barst boltinn til Sigvaldi sem þrumaði boltanum í slána og inn. Ísland leiðir með tveimur mörkum þegar tvær mínútur eru eftir af hálfleiknum.
Ómar með þriðja markið sitt
Ómar Ingi er nú kominn með þrjú mörk og staðan er 11-13 Íslandi í vil.
Stiven skorar!
Stiven Tobar Valencia spilaði sínar fyrstu mínútur á mótinu og var ekki lenga að setja mark sitt á leikinn. Ómar Ingi fann hann með snilldarsendingu í horninu og Stiven var öryggið uppmálað. Staðan er nú 9-11 fyrir Íslandi.
Góði kaflinn
Ísland fór úr 4-3 í 4-6 og er nú komið með fjögurra marka forystu, 6-10.
Elliði Snær setti eitt af sínum frægu miðjuskotum með yfirsnúningi. Hárfínt og engin leið að verjast þessu.
Staðan er nú 8-10 en Svartfellingar skoruðu úr víti. Bjarki Már fékk tveggja mínútna brottvísun.
Aron stelur og stelur
Aron Pálmarsson er í svakalegum gír í varnaleiknum. Hann heldur uppteknum hætti frá því í fyrsta leik. Aron hefur nú stolið boltanum tvisvar á skömmum kafla og staðan orðin 5-8 Íslandi í vil.
Ísland yfir í fyrsta sinn
Aron heldur áfram að spila virkilega vel í vörninni. Hann stal boltanum og kom honum til Elvars Arnar sem geystist fram og setti glæsilegt skot utan af velli. Staðan er 4-5 fyrir Íslandi eftir tíu mínútna leik.
Allt í járnum í upphafi
Staðan er 4-4 eftir átta mínútna leik þar sem liðin skiptast á höggum. Við sækjum gríðarhratt fram en Svartfellingar ná að hlaupa með okkur til baka.
Svartfellingar með fyrsta markið
Svartfjallaland setti fyrsta mark leiksins en Ísland geystist fram. Óðinn Þór Ríkharðsson jafnaði metin en hann kom inn í hópinn í dag. Staðan er 1-1 eftir fjögurra mínútna leik.
Leikurinn er hafinn
Leikurinn er hafinn. Svartfellingar byrjuðu með boltann og reyndu sirkusmark í fyrstu sókn. Boltinn fór langt, langt, langt yfir.
Fyrsta skot okkar geigaði en Aron Pálmarsson skaut fram hjá.
Svartfellingar geystust fram og áttu skot sem fór í andlit Viktors Gísli og Vujovic fékk tveggja mínútna brottvísun.
Stemningin er í stúkunni
Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði í fótbolta er í stúkunni, en hún er fyrirliði Bayern München og því á heimavelli.
Hreimur Örn Heimisson söngvari er sömuleiðis í stúkunni.
Styttist í leikinn - spennan magnast
Íslenska stuðningssveitin sem telur um 5.000 manns var rétt í þessu að öskursyngja Ferðalok eftir Óðinn Valdimarsson. Lagið er ungverskt í grunninn og því á þeim ungversku sennilega eftir að bregða í næsta leik.
En fyrst eru það Svartfellingar. Spennan er að magnast. Stuðningssveitin er klár. Jarlinn er búinn að spá okkur sigri. Fram undan eru sextíu mínútur af átökum. Er Ísland að fara að vinna sinn fyrsta sigur á mótinu?
Við erum farin í loftið
Stofan er hafin. Við vonum að Grindvíkingar og þjóðin öll geti gleymt eldgosinu um stund. Núna er það strákanna okkar að gleðja.
Áfram Ísland!
Þjálfari Svartfellinga athyglisverður Króati
Þjálfari Svartfjallalands er Valdo Sola sem var landsliðsmarkvörður Króatíu. Sola er litríkur karakter sem hefur verið þekktur fyrir athyglisverða hárgreiðslu í gegn um tíðina.
Eitt sinn var hann með skærrautt hár á ÓL 2004 þegar liðið stóð uppi sem sigurvegari. Hann hefur lengi vel skartað strípuðu og aflituðu hári.
Króatískir stuðningsmenn fagna Sola í undanúrslitum ÓL 2004.
Sola lék með króatíska landsliðinu frá 1991 til 2005 og lék alls 132 leiki. Hann varð Ólympíumeistari 2004, heimsmeistari 2003 og hlaut auk þess nokkur silfur og gullverðlaun.
Hann tók við liði Svartfjallalands á síðasta ári en hefur áður þjálfað í Katar og liðið Beijing Sports University í Kína.
Leiknum lýst á Rás 2 - almannavarnir á Rás 1
Almannavarnarútvarpið verður á Rás 1 á meðan á leik Íslands og Serbíu stendur. Leiklýsingin verður því á Rás 2 eins og lagt var upp með.
Venjulega er Rás 2 almannavarnarstöðin en Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson lýsir leiknum á Rás. Eins og er er almannavarnarútvarp í gangi á báðum stöðum. En þegar leikur hefst verður almannaútvarpið alfarið fært yfir á Rás 1.
Handboltareglur geta verið flóknar
Þrátt fyrir að oft sé talað um að handbolti sé þjóðaríþrótt Íslendinga þá eru ekkert endilega allir með allar reglurnar 100% á hreinu, ekki einu sinni leikmennirnir sjálfir.
Einar Örn Jónsson og Logi Geirsson fara hér aðeins yfir nokkrar grunnreglur í íþróttinni og ekki verra að kíkja á myndbandið fyrir leikinn á eftir.
Klæjar í fingurna að svara fyrir Serbíuleikinn
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari ræddi við Einar Örn Jónsson um leikinn mikilvæga sem fram undan er gegn Svartfjallalandi. Snorri var ekkert að skafa utan af hlutunum og segir að liðið þurfi að gera betur en gegn Serbíu.
„Það eru örlitlar áherslubreytingar varnarlega. Þeir eru með öðruvísi leikmenn, meiri skyttur. Ekki það að við ætlum að vera út um allar trissur. Við ætlum að bjóða upp á ákveðin skot, önnur ekki.
Svo þurfum við að gera betur sem lið sóknarlega. Við vorum lélegir þar síðast. Við þurfum klárlega betri frammistöðu ef við ætlum ekki að lenda í veseni.“
Þá ræddi hann einnig ákvörðun sína að taka Hauk Þrastarson út úr hóp og setja Óðinn Þór inn. Óðinn verður nú annar hægri hornamaður með Sigvalda.
„Ég er að rúlla aðeins á liðinu. Sigvaldi spilaði allan leikinn síðast. Ég reikna með því að þetta verði langt og strangt mót. Við þurfum á öllum okkar mönnum að halda.“
Að lokum ræddi Snorri hugarástand liðsins. Er blóð á tönnunum? „Ég skynja allavega ekki neitt annað. Auðvitað voru menn sáttir með stigið en fúlir með frammistöðu. Ég fann það bara strax eftir leik og ég held að mörgum klæji í fingurna að fá að svara fyrir frammistöðuna síðast.“
Búist við enn fleiri Íslendingum í dag
Íslenska stuðningssveitin hefur sett sinn svip á München. Í fyrsta leik voru rétt rúmlega 3.000 manns í höllinni en enn hefur bæst í stuðningssveitina í dag. HSÍ býst við að um 5.000 manns verði í Ólympíuhöllinni í München en hún tekur 12.500 manns.
Sérsveitin hefur hreiðrað um sig á staðnum Hofbräuhaus í miðborg München. Þar er upphitun á hverjum leikdegi. Staðurinn er einn helst þekktur fyrir að vera staðsetning misheppnaðs valdaráns Adolfs Hitlers árið 1923. Hann komst til valda tíu árum síðar en einnig hélt hann sína fyrstu ræðu í Hofbräuhaus. Við skulum vona að ekkert valdarán eigi sér stað í íslensku upphituninni í dag.
Haukur út úr hóp
Haukur Þrastarson hvílir ásamt Kristjáni Erni Kristjánssyni en Óðinn Þór Ríkharðsson kemur í Hauks stað. Donni hvíldi einnig í síðasta leik.
Haukur kom ekki við sögu í leiknum Serbíu.
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (88/96)
Aron Pálmarsson, FH (171/651)
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (108/379)
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (5/0)
Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (40/77)
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (67/162)
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (54/121)
Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (75/119)
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (77/363)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Chaffhausen (32/91)
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (66/190)
Stiven Tobar Valencia, Benfica (9/10)
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig Handball (47/124)
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (79/35)
Utan hóps
Haukur Þrastarson, Barlinek Industria Kielce (26/32) og Kristján Örn Kristjánsson, Pays d’Aix Université Club Handball (31/60)
Logi er brattur - liðið dettur úr handbremsu
Helga Margrét Höskuldsdóttir og Einar Örn Jónsson ræddu við Loga Geirsson um leik dagsins og stemninguna í München.
„Það eru fleiri hundruð mætt hérna á þetta hótel. Íslendingar hafa tekið yfir München. Við vitum alveg hvað er að fara að gerast í dag. Liðið er að fara að detta úr handbremsu,“ segir Logi. Þau ræddu við hann um leikplanið gegn Svartfjallalandi, spennustigið í fyrsta leik og Færeyjaleikinn í gær.
Þá fór Einar Örn yfir líkur okkar í riðlinum.
Af hverju er EM stofan græn?
Á EM karla í handbolta í ár er í fyrsta skipti á Íslandi notast við nýja tækni. Sýndarsvið er í Stofunni og þau Kári, Kristjana og Ásgeir eru umlukin grænu. En hvernig er þetta gert? Og af hverju þurfti að mála rósina hans Kára bláa?
Stofan á EM karla í handbolta í ár nýtir tækni sem aldrei hefur áður sést á Íslandi. Búið er að setja upp sýndarsvið. Notast er við svokallaða „green-screen“ tækni sem er vel þekkt. En nú er verið að nota „green-screen“ í beinni útsendingu og með fleiri en einni myndavél.
Þau Kristjana Arnarsdóttir, Kári Kristján Kristjánsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson eru því böðuð í grænu þegar þau greina leiki Íslands. Í Serbíuleiknum var tæknin í fyrsta sinn keyrð í beinni útsendingu.
Þorgeir Logason pródusent á íþróttadeild RÚV ræddi um þessa glænýju stofu. Viðtalið má lesa í fréttinni hér að ofan.
„Þetta er í fyrsta skipti sem það er bein útsending með fleiri en einni myndavél og green-screen þar sem Unreal tölvuleikjatæknin er notuð. Þetta hefur aldrei áður sést í hér á landi í íþróttaútsendingum.
Við byrjuðum að vinna að sýndarsviðinu í október 2023. Þá fórum við á fullt í að vinna að þessu og það hefur verið þrautlaus vinna síðan. Þessi tækni er nýtt á miklu fleiri stöðum en maður heldur. Til að mynda í BBC Match of the Day og á íþróttasjónvarpsstöðinni ESPN.“
Refurinn Jarl búinn að spá í spilin
Refurinn Jarl í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum heldur áfram að spá í spilin fyrir leik Íslands á EM.
Hann reyndist sannspár í fyrsta leik þar sem hann fékk sér ekki bita - hvorki úr skál Serbíu né Íslands. Því spáði hann raunar jafntefli sem varð niðurstaðan.
Hann er mun skýrari í spá dagsins - en hverju spáir hann?
Innslag frá München - Elliði telur rauða spjaldið réttan dóm
Teymið úti í München ræddi við strákana okkar eftir leikinn gegn Serbíu. Hvað þarf að laga?
Þau Einar Örn Jónsson, Logi Geirsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir ræddu við Snorra Stein þjálfara, Bjarka Má Elísson og Ómar Inga Magnússon.
Elliði Snær Viðarsson telur að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Serbíu hafi verið réttur dómur. Hann ætlar að passa sig í næstu leikjum.
„Ég held að þetta hafi verið rétt. Ég er ekki búinn að horfa á þetta oft aftur, en ég kíkti aðeins á útsendinguna. Ég held þetta hafi verið réttur dómur, en ég er bara ferskur í dag. Ég er ferskur fyrir restina af leikjunum.
Á fyrsta stórmótinu mínu fékk ég þrjú rauð spjöld í röð. Ég held að eitt sé bara nóg í þessu móti og látum það bara kyrrt liggja.“
Sagan með okkur í liði
Íslenska liðið hóf EM 2024 með dramatísku jafntefli gegn Serbíu. Slíkt hið sama gerðist á EM 2010 í fyrsta leik liðanna á mótinu. Ísland tók brons heim með sér af mótinu. Hvað skyldi vera í uppsiglingu nú?
Samanburður á liðum Íslands og Svartfjallalands
Við skulum skoða aðeins leikmenn liðanna stöðu fyrir stöðu og sjá samanburðinn.
Leikdagur hjá Íslandi
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar sinn fyrsta leik á EM 2024 í dag. Mótherji dagsins er Serbía en liðin eru í C-riðli ásamt Ungverjalandi og Svartfjallalandi.
Leikurinn hefst 17:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV, upphitun í Stofunni hefst 16:30. Einnig verður hægt að hlusta á leikinn á Rás 2.
Við munum fylgjast með gangi mála í München hér í fréttavaktinni í allan dag.