Mörkunum rigndi í norðrinu
Nýliðar Luton og heimamenn í Newcastle áttust við í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í dag. Sóknarleikurinn var í aðalhlutverki í dag en leikar enduðu 4-4. Sean Longstaff kom Newcastle yfir tvisvar í fyrri hálfleik en Luton liðar jöfnuðu í tvígang. Jafnt var í hálfleik en eftir 62 mínútur var Luton komið með tveggja marka forystu og staðan því 2-4. Newcastle menn lögðu ekki árar í bát og jöfnuðu með tveimur mörkum á sex mínútum.
Gabriel Osho, Ross Barkley, Clinton Morris og Elijah Anuoluwapo Oluwaferanmi Oluwatomi Oluwalana Ayomikulehin Adebayo skoruðu mörk Luton í dag. Áðurnefndur Longstaff skoraði tvö mörk fyrir Newcastle en Kieran Trippier og Harvey Barnes jöfnuðu metin í seinni hálfleik.
Bæði lið bölva jafnteflinu en Luton er einu stigi frá fallsæti. Þá fjarlægist Newcastle óðfluga Evrópubaráttuna og er nú er í níunda sæti, tólf stigum frá Meistaradeildarsætinu sem liðið náði í á síðasta tímabili.
Fyrr í dag gerðu Everton og Tottenham 2-2 jafntefli þar sem Everton jafnaði á ögurstundu. Innkoma Jóhanns Bergs Guðmundssonar í lið Burnley eftir 64 mínútur hafði góð áhrif. Liðið var þá 0-2 undir á heimavelli en leiknum lauk með 2-2 jafntefli þar sem David Fatro Fofana skoraði tvisvar á lokakaflanum.
Önnur úrslit:
Brighton 4 - 1 Crystal Palace
Leikur Sheffield United og Aston Villa fer fram klukkan 17:30.