7. febrúar 2024 kl. 9:13
Íþróttir
Fótbolti

Eftirnafn Gísla flókið fyrir Halmstad

Einn besti leikmaður úrvalsdeildarinnar í fótbolta hér heima síðustu ár, Gísli Eyjólfsson, er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Halmstad. Gísli var kynntur til leiks hjá félaginu í gær en athygli vakti að eftirnafn Gísla var ekki alveg rétt prentað á treyjuna.

Eyjólfsson varð Eyjlófsson en ætla má að Halmstad-menn verði búnir að græja stafaruglinginn fyrir fyrsta leik tímabilsins í Svíþjóð.