Guðný Björk Stefánsdóttir setti Íslandsmet í jafnhendingu á Evrópumeistaramótinu í ólympískum lyftingum í Búlgaríu um helgina. Guðný keppti í -76kg flokki og var þetta hennar fyrsta stórmót í ólympískum lyftingum. Guðný lyfti 85kg í snjörun þar sem hún á best 90kg.
Í jafnhendingunni gekk hinsvegar allt upp og hún lyfti þar 104kg, 107kg og loks 110kg í lokalyftunni sem jafnframt var nýtt íslandsmet. Guðný var efst fjögurra keppenda í B-hópnum og endaði í 10.sæti í -76 flokknum.
www.worldweightliftingmedia.com / Isaac Morillas Sanchez
Síðustu tveir keppendur Íslands á mótinu, þær Friðný Fjóla Jónsdóttir og Erla Ágústdóttir, keppa á morgun 19. febrúar klukkan 10:00 að íslenskum tíma. Hægt er horfa á keppnina í beinni útsendingu. Nánar um það á vef Lyftingasambands Íslands.