29. febrúar 2024 kl. 21:09
Íþróttir
Handbolti

Valur og Haukar með sigra

Átjánda umferð Olís deildar karla í handbolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. Á Hlíðarenda höfðu Valsarar betur gegn ÍBV, 33-30.

Eftir jafnar upphafsmínútur náðu Eyjamenn góðum kafla um miðbik fyrri hálfleiksins og komust í fjögurra marka forystu um stund. Petar Jokanovic fór hamförum í marki ÍBV í fyrri hálfleik og varði 11 skot en ÍBV var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17-15.

Valsmenn jöfnuðu metin þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum, 22-22, og Valur komst svo í bílstjórasætið í kjölfarið. Benedikt Gunnar Óskarsson var í miklum markagír í kvöld og skoraði 10 fyrir Val sem vann leikinn 33-30 og minnkaði forskot FH-inga í eitt stig á toppnum.

Benedikt Gunnar Óskarsson leikstjórnandi í liði Vals.
Benedikt Gunnar ÓskarssonRÚV / Mummi Lú

Spennan var ekki síðri að Varmá þar sem Afturelding tók á móti Haukum og höfðu gestirnir betur, 24-28.

Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Haukar marki yfir í hálfleiknum, 15-14. Hafnfirðingar voru áfram skrefinu framar á upphafsköflum síðari hálfleiksins en þegar 12 mínútur voru til leiksloka jafnaði Árni Bragi Eyjólfsson metin í 23-23. Haukar voru þó ekki á því að leyfa Mosfellingum að taka stig í kvöld og góður lokakafli Hauka skilaði þeim fjögurra marka sigri, og fóru Haukar upp í fimmta sætið og upp fyrir Fram með sigrinum.