Aftur tapaði Ísland stórt fyrir Svíum
Svekkelsi eftir leik en líka hægt að byggja ofan á það jákvæða
Fjórtán marka tap staðreynd
Íslenska liðið byrjaði þennan leik frábærlega og skoraði fjögur fyrstu mörk leiksins. Svíar fundu sig hægt og rólega í sóknarleiknum en Ísland leiddi þó enn með fjórum mörkum eftir 11 mínútna leik, 4-8.
Þá datt hins vegar allt í baklás hjá íslenska liðinu og þær sænsku skoruðu næstu sex mörk leiksins. Ísland skoraði loks sitt níunda mark á 18. mínútu en aftur svaraði Svíþjóð með sex mörkum í röð.
Í heildina skoraði Ísland einungis þrjú mörk á tæplega tuttugugu mínútna kafla og Svíar leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 18-11.
Svíar sýndu styrk sinn
Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri endaði, Svíar skoruðu fjögur fyrstu mörkin og sóknarleikur Íslands var ekki upp á marga fiska.
Munurinn hélst þó í þessum tíu-tólf mörkum mest allan leikinn og má gefa íslenska liðinu hrós fyrir að leggja einfaldlega ekki árar í bát. Líkt og vitað var er breiddin í sænska liðinu einfaldlega mun meiri.
Munurinn þegar flautað var til leiksloka var fjórtán mörk, 37-23.
Thea Imani Sturludóttir var markahæst í liði Íslands með sex mörk, Perla Ruth Albertsdóttir skoraði fjögur. Þá varði Elín Jóna Þorsteinsdóttir sex skot í marki Íslands.
Þessi leikur hefur þó engin svaka áhrif á framhaldið, Ísland þarf einfaldlega að vinna Færeyjar og Lúxemborg í apríl og þá erum við á leiðinni á EM.
Sænska liðið byrjaði seinni hálfleik mun betur
Nú var það Svíþjóð sem skoraði fjögur fyrstu mörk hálfleiksins. Ísland var lengi í gang hér eftir hlé en hafa verið að finna taktinn betur sóknarlega.
Munurinn, þegar tíu mínútur eru liðnar af þessum seinni hálfleik, er elllefu mörk, 26-25.
Sjö marka munur í hálfleik
Ísland byrjaði leikinn mjög vel en Svíar skoruðu tvívegis sex mörk í röð og það er ekki líklegt til árangurs. Staðan í hálfleik er 18-11, heimakonum í vil.
Thea Imani Sturludóttir er markahæst í íslenska liðinu með 3 mörk.
Svíar komast yfir
Ísland byrjaði leikinn frábærlega og komst í 4-8 en fimm sænsk mörk í röð hafa snúið taflinu við og nú leiðir Svíþjóð með einu marki, 9-8.
Ísland skorar fjögur fyrstu mörk leiksins
Algjör draumabyrjun hjá Íslandi sem skorar fjögur fyrstu mörkin. Loks skora þær sænsku í sinni fjórðu sókn og minnka muninn í 1-4.
Leikurinn er farinn af stað
Ísland byrjar með boltann og fær vítakast í fyrstu sókninni.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir stígur á línuna og skorar af öryggi. 1-0!
Stofan hafin
Einar Örn Jónsson hitar upp fyrir leikinn með sérfræðingum okkar, Kristínu Guðmundsdóttur og Örnu Sif Pálsdóttur. Þau munu svo gera upp leikinn í hálfleik og eftir leik.
Samanlagt eiga þau yfir 300 landsleiki fyrir Íslands hönd!
Landsliðsþjálfarinn vill lengja góða kaflann
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari, segir að leikurinn í dag verði strembinn enda á erfiðum útivelli. Hann segir þó margt hafa verið gott í síðasta leik og vill lengja þann góða kafla í dag.
Tvær breytingar á hópnum
Leikmannahópur Íslands fyrir leikinn er klár. Arnar Pétursson gerir tvær breytingar á hópnum frá leiknum á miðvikudag.
Þær Katrín Tinna Jensdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir koma inn í hópinn og Elísa Elíasdóttir og Katla María Magnúsdóttir detta út.
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (56/2)
Sara Sif Helgadóttir, Valur (8/0)
Aðrir leikmenn:
Aldís Ásta Heimisdóttir, Skara (8/3)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (23/5)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (9/16)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (16/36)
Hildigunnur Einarsdóttir, Valur (105/124)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Skara (12/8)
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (17/4)
Lilja Ágústsdóttir, Valur (21/15)
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (45/81)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (87/64)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (75/162)
Tinna Sigurrós Traustadóttir, Selfoss (1/1)
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (44/48)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (134/388)
Herbergisfélagarnir Þórey og Sunna
Þórey Rósa Stefánsdóttir og Sunna Jónsdóttir eru með reynslumeiri leikmönnum íslenska liðsins. Þórey Rósa spilar sinn 135 landsleik í dag og Sunna 87. landsleikinn.
Þær voru herbergisfélagar á HM í desember og skelltu sér í góða spurningakeppni fyrir mótið sem sjá má á Instagram-síðu RÚV Íþrótta.
https://www.instagram.com/p/Cz-1GIIi-U1/
Nýliðinn segir markmiðið alltaf hafa verið að komast í landsliðið
Tinna Sigurrós Traustadóttir lék sinn fyrsta A-landsleik og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í fyrri leiknum gegn Svíum. „Það er bara frábært að fá að spila með þeim og ná markmiðinu.“ segir Tinna en viðtal við hana má sjá hér að neðan.
Thea Imani Sturludóttir í viðtali
Thea Imani Sturludóttir segir 13 marka tap í fyrri leiknum ekki endilega gefa góða mynd af getumuninum á milli liðanna. Íslenska liðið viti hvað gera þarf til þess að standa betur í sænska liðinu, því fjórða besta í heimi.
Góður möguleiki á EM sæti
Ísland mætir Svíþjóð í undankeppni EM kvenna í handbolta í Karlskrona í Svíþjóð klukkan 13:00. Svíþjóð hefur unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum til þessa en Ísland hefur unnið tvo af þremur. Ásamt Íslandi og Svíþjóð eru í riðlinum Lúxemborg og Færeyjar.
Ísland tapaði fyrir Svíþjóð í fyrri leik liðanna á miðvikudaginn var með 13 mörkum 24-37 og því ærið verkefni sem bíður liðsins ytra í dag.
Tvö efstu lið riðilsins komast á EM, en góður árangur í þriðja sæti gæti líka gefið EM sæti. Ísland var nokkuð sannfærandi í fyrri leikum sínum gegn bæði Færeyjum og Lúxemborg. Ísland vann Lúxemborg 32-14 í fyrsta leik og svo Færeyjar 23-28 í öðrum leik.
Ísland á því góðan möguleika á því að komast á lokamót Evrópumótsins sem verður í Austurríki, Ungverjalandi og Sviss 28. nóvember til 15. desember næstkomandi.