11. maí 2024 kl. 16:08
Íþróttir
Fótbolti

Skagamenn unnu nýliðaslaginn

ÍA vann Vestra í Bestu deild karla í fótbolta rétt í þessu. Leiknum lauk með þriggja marka sigri. Þetta var fyrsti grasleikur Skagamanna í ár. Áður hafði liðið leikið tvisvar í gervigrashöll sinni.

Úr leik Val og ÍA í Bestu deild karla í fótbolta
Mummi Lú

Í leiknum mættust liðin tvö sem fóru upp úr Lengjudeildinni í fyrra. Viktor Jónsson kom heimamönnum yfir á 38. mínútu. Sænski varnarmaðurinn Johannes Vall tvöfaldaði forskotið með aukaspyrnu af löngu færi. Þar gerðist landi hans, William Eskelinen, sekur um slæm mistök í marki Vestra. Guðfinnur Þór Leósson gulltryggði svo sigurinn með marki á 67. mínútu.

ÍA er í fimmta sæti með níu stig eftir sex leiki. Vestri er í níunda sæti með sex stig.

KA og Valur mætast fyrir norðan í hinum leik dagsins. Hann hefst klukkan 17:00.