Víkingar unnu toppslaginn og tróna á toppnum
Víkingar tróna einir á toppnum í Bestu deild karla í fótbolta eftir sigur gegn FH, 2-0. Liðin voru fyrir leik jöfn að stigum í toppsætunum tveimur með tólf stig hvort. Nú er Víkingur með þriggja stiga forskot í fyrsta sæti.
Besta færi FH í fyrri hálfleik fékk Sigurður Bjartur Hallsson er hann slapp í gegn, en Ingvar Jónsson var vandanum vaxinn. Jón Guðni Fjóluson lék sinn fyrsta leik í sumar. Fyrsta mark Víkinga kom eftir fyrirgjöf Jóns sem rataði beint á Aron Elís Þrándarsonar. Aron stýrði boltanum í markið og Sindri Kristinn kom engum vörnum við.
Víkingur kláruðu leikinn einum færri en Nikolaj Hansen fékk sitt annað gula spjald á 77. mínútu leiksins. Ástbjörn Þórðarson bjargaði á línu eftir skot Helga Guðjónssonar á 82. mínútu. Helgi tvöfaldaði forystu Víkinga með skalla eftir aukaspyrnu Karls Friðleifs þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.
Breiðablik vann öruggan 0-3 útisigur gegn Fylki. Blikar eru nú í öðru sæti, jafnir FH að stigum með tólf stig en með betri markatölu.