14. maí 2024 kl. 20:23
Íþróttir
Fótbolti

Valskonur enn með fullt hús stiga

Valskonur eru enn með fullt hús stiga á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta eftir 3-1 sigur á Tindastóli í kvöld. Þar voru það gestirnir frá Sauðárkróki sem komust yfir áður en Valskonur skoruðu þrisvar og tvö þeirra marka skoraði Fanndís Friðriksdóttir.

Myndir úr leik Vals og Þór/KA í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Mummi Lú

Fimmta umferð hófst í kvöld með þremur leikjum. Stjarnan vann 4-3 sigur á FH og Þór/KA vann 4-0 sigur á Keflavík. Þór/KA komst með sigrinum upp í þriðja sæti með 12 stig eins og Breiðablik sem á leik til góða, þremur stigum á eftir toppliði Vals. Blikar hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína og geta náð Val að stigum með sigri á Fylki á morgun.