Athugið að þessi frétt er meira en 1 árs gömul

Samantekt

Sjáðu mörkin: Ótrúlegt mark Adolfs Daða

Jóhann Páll Ástvaldsson

,
16. maí 2024 kl. 21:51 – uppfært

Umfjöllun: Stjarnan skein í Garðabæ

Eftir leiki kvöldsins er ljóst hvaða sex lið eru í pottinum í átta liða úrslitum. Sóknarlína Stjörnunnar sýndi hvað í hana er spunnið í kvöld gegn KR.

Stjarnan 5 - 3 KR

Staðan var 1-1 í hálfleik en Örvar Eggertsson kom Garðbæingum yfir eftir mistök Rúriks Gunnarssonar. Varnarjaxlinn Axel Óskar Andrésson jafnaði metin með góðu skoti úr teignum. Örvar kom Stjörnunni aftur yfir eftir laglegt samspil Stjörnumanna. Guðmundur Baldvin Nökkvason og Róbert Frosti Þorkelsson bættu svo við mörkum og allt útlit var fyrir öruggan sigur Stjörnunnar.

Þegar einungis fjórar mínútur voru til leiksloka leiddu þeir 4-1. Benóny Breki Andrésson og KR liðið voru hins vegar ekkert á þeim buxunum að gefast upp. Benóný skoraði á 86. og 88. mínútu. Allt í einu áttu KR möguleika á framlengingu eftir að hafa sýnt lítið sem ekkert í seinni hálfleik.

Adolf Daði Birgisson gerði hins vegar endanlega út um vonir Garðbæinga með glæsilega marki kvölds. Það má sjá hér að neðan en neðar í færslunni má sjá öll helstu atvik kvöldsins.

KR hefur nú ekki unnið í fimm leikjum í röð en Stjarnan hefur aftur á móti unnið fjóra af síðustu fimm og gert eitt jafntefli. Hlutskipti liðanna hefur verið afar ólíkt frá því KR vann Stjörnuna 1-3 14. apríl síðastliðinn.

Ríkjandi bikarmeistarar Víkings voru ekki í teljandi vandræðum með Grindavík. Liðið vann 1-4 sigur gegn Lengjudeildarliðinu en síðustu tvö mörkin komu rétt fyrir leikslok.

Keflavík heldur áfram að slá Bestu deildar lið út en liðið vann 3-1 sigur gegn ÍA. ÍA hafði góða stjórn á leiknum eftir að hafa komist snemma yfir, en rautt spjald eftir mikinn klaufagang í vörn Skagamanna sneri leiknum á hvolf.

Þá komst HK yfir snemma í Árbænum gegn Fylki en þá vöknuðu heimamenn. Lokatölur urðu 3-1 sigur í þessum Bestu deildar slag.

Leikmenn karlaliðs Víkings í fótbolta fagna Mjólkurbikarstitli sínum 2023
RÚV / Mummi Lú

Liðin sem eru í pottinum

KA vann Vestramenn í gær og Þór vann Fjölni fyrr í vikunni.

  • KA
  • Þór
  • Keflavík
  • Fylkir
  • Víkingur
  • Stjarnan
  • Fram/ÍH
  • Afturelding/Valur

Sextán liða úrslitum lýkur á morgun með tveimur leikjum. Afturelding - Valur er í beinni útsendingu á RÚV2 frá klukkan 19:20 en Fram tekur á móti 4. deildar liði ÍH.

16. maí 2024 kl. 21:30 – uppfært

Adolf kláraði leikinn með rosalegu marki

Adolf Daði Birgisson klárar þetta endilega eftir glæsileg tilþrif. Hann sneri á varnarmenn KR með flikkflakk brellu áður en hann vippaði boltanum yfir varnarlausan Guy Smit.

KRingar voru að þjarma að Stjörnumönnum fyrir þetta, og voru farnir að hóta því að jafna. Adolf Daði hafði hins vegar allt, allt aðrar hugmyndir.

16. maí 2024 kl. 21:22 – uppfært

Hvað er að gerast?

Benóny Breki skorar annað mark sitt. Staðan er nú 4-3 og einungis mínúta eftir. Er hið ótrúlega að fara að gerast?

16. maí 2024 kl. 21:20

Benóny minnkar muninn

Benoný Breki Andrésson minnkar muninn frir KR. Luke Rae kemur boltann á Benóný sem klárar af öryggi. KR þarf tvö mörk á nokkrum mínútum.

Erum við að fá spennandi lokamínútur?

16. maí 2024 kl. 21:19

Fimm mínútur til leiksloka

Það lítur allt út fyrir að Stjörnumenn séu á leiðinni í átta liða úrslit. KRingar þurfa á kraftaverki að halda en nú eru fimm mínútur til loka venjulegs leiktíma. Þeir þurfa þrjú mörk til að knýja fram framlengingu.

16. maí 2024 kl. 21:11 – uppfært

Víkingur og Fylkir í átta liða úrslit

Þá er það ljóst að bikarmeistarar Víkingar og Fylkir eru komin áfram. Úrslit dagsins hingað til:

Grindavík 1 - Víkingur 4
Fylkir 3 - 1 HK
Keflavík 3 - 1 ÍA

Stjarnan var rétt í þessu að skora sitt fjórða mark en þar var Óli Valur Ómarsson að verki. Það eru fjórtán mínútur til leiksloka. Hann fékk hárfína sendingu inn fyrir frá Adolfi Daða og setti boltann fram hjá Guy í markinu.

16. maí 2024 kl. 21:05

Víkingar bæta við mörkum

Þeir Valdimar Þór Ingimundarsson og Viktor Örlygur Andrason hafa endanlega gert út um leik Víkinga gegn Grindavík. Þeir skoruðu þriðja og fjórða markið eftir 88. og 90. mínútna leik.

Valdimar átti frábært skot eftir samspil fyrir utan teiginn. Viktor bætti við sínu eigin skoti fyrir utan teig sem fór í stöngina og inn.

Bikarmeistararnir eru á leiðinni í átta liða úrslit.

16. maí 2024 kl. 20:49 – uppfært

Guðmundur bætir við þriðja markinu

Stjörnumenn gefa bara enn frekar í. Guðmundur Baldvin Nökkvason gerði þriðja mark þeirra á 55. mínútu eftir sendingu Róberts Frosta Þorkelssonar. Þetta virkaði afar einfalt. Sending fyrir af stuttu færi og Guðmundur gat ekki annað en stýrt boltanum í markið.

16. maí 2024 kl. 20:47

Á Grindavík möguleika?

Josip Krznaric er búinn að minnka muninn fyrir Grindvíkinga. Markið kom á 65. mínútu en Josip fylgdi eftir skalla Símons Loga Thasaphong sem fór í slá.

Þeir hafa nú tuttugu mínútur til að jafna metin gegn Víkingum.

16. maí 2024 kl. 20:43 – uppfært

Glæsilegt mark!

Vá! Þvílíkt spil. Stjörnumenn sundurspiluðu vörn KR með þríhyrningaspili. Óli Valur fann Örvar Eggertsson á fjærstönginni að lokum. Örvar setti boltann snyrtilega í fjærhornið, í annað sinn í leiknum.

Axel Óskar fer út af en hann hefur verið tæpur frá því snemma í leiknum. Lúkas Magni kemur inn fyrir hann.

16. maí 2024 kl. 20:36

Erlingur tvöfaldar forskot bikarmeistarana

Erlingur Agnarsson skoraði annað mark Víkinga á 53. mínútu gegn Grindavík. Helgi Guðjónsson átti fyrirgjöf sem Erlingur kláraði vel. Við birtum mörkin úr leiknum að honum loknum á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter). Þau koma einnig inn hér í þessa fréttavakt.

Hálfleikur er í Garðabæ. Hér eru tvö atvik sem komu rétt áður en flautað var til hálfleiks.

16. maí 2024 kl. 20:19

Styttist í hálfleik í Garðabæ

Emil Atlason var í dauðafæri fyrir skemmstu en KRingar komu á einhvern ótrúlegan hátt í veg fyrir annað mark Stjörnumanna. Uppbótartíminn er sex mínútur en þrjár mínútur eru liðnar af honum.

Alex Þór Hauksson átti áður ágætis skot en Mathias Rosenörn var vandanum vaxinn í markinu.

16. maí 2024 kl. 20:16 – uppfært

Keflvíkingar í átta liða úrslit

Keflvíkingar slá sitt annað Bestu deildar lið úr leik. Í kvöld lágu Skagamenn í valnum, 3-1 en áður hafði Lengjudeildarliðið slegið út Breiðablik.

Sami Kamel skoraði tvö mörk og Valur Þór Hákonarson eitt. Hinrik Harðarson kom ÍA yfir snemma leiks en rautt spjald Erik Tobias Sandberg eftir 36 mínútur sneri algjörlega gangi leiksins. Frans Elvarsson fékk rautt spjald fyrir heimamenn þegar fjórar mínútur voru til leiksloka, en það kom ekki að sök.

16. maí 2024 kl. 20:06

Hálfleikur í tveimur leikjum

Búið er að flauta til hálfleiks í leik Grindavíkur og Víkinga og í leik Fylkismanna gegn HK.

Við erum komin í uppbótartíma í Keflavík. Þar virðast heimamenn vera að slá annað lið úr Bestu deildinni úr leik. Nú liggja Skagamenn í valnum en áður hafði Keflavík slegið Breiðablik út.

16. maí 2024 kl. 20:01

KR jafnar metin

Upp úr engu jafna KRingar! Rúrik Gunnarsson á langa aukaspyrnu á 29. mínútu leiksins. Stjörnumenn skalla boltann sem fellur beint til Axels Óskars Andréssonar. Hann tók snertingu og setti boltann af öryggi út við stöng.

Axel hafði lent í meiðslum og átti að skipta honum út af. Vesturbæingar fagna því að skiptingin hafi ekki verið búin.

16. maí 2024 kl. 19:59

Keflavík að sigla sigrinum heim?

Valur Þór Hákonarson kom af varamannabekk Keflvíkinga um miðjan seinni hálfleikinn. Hann náði að setja mark sitt á leikinn en hann skoraði þriðja mark Keflavíkur eftir góðan sprett hjá Ásgeiri Pál.

Nú eru níu mínútur til leiksloka en Skagamenn þurfa tvö mörk. Frans Elvarsson fékk rautt spjald fyrir Keflavík rétt í þessu.

Stjarnan og Víkingar leiða enn 1-0 en það eru liðnar 29 og 35 mínútur í leikjunum. Tveimur. Fylkismenn eru enn 3-1 yfir gegn HK, rétt fyrir hálfleik.

16. maí 2024 kl. 19:53

Enn skorar Fylkir

Staðan er nú 3-1 í Árbæ. Benedikt Daríus Garðarsson var nýbúinn að klúðra víti en mínútu síðar, á 27. mínútu, skoarar hann eftir stoðsendingu Sigurbergs Áka Jörundssonar.

16. maí 2024 kl. 19:51 – uppfært

Stjarnan komin yfir

Örvar Eggerstsson kemur heimamönnum í Stjörnunni yfir. Rúrik Gunnarsson í vörn KR átti slæma sendingu til baka sem Örvar komst inn í. Hann var ekki í vandræðum með að setja boltann fram hjá Guy í markinu.

16. maí 2024 kl. 19:50

Bikarmeistararnir komnir yfir

Bikarmeistara Víkings eru komnir yfir eftir 30 mínútna leik gegn Grindavík. Danijel Dejan Djuric var þar að verki en hann sneri aftur í byrjunarliðið í dag. Danijel var fjarri góðu gamni í síðasta deildarleik gegn FH.

Gunnar Vatnhamar átti sendinguna en mark Djuric fór undir Aron Dag í markinu.

16. maí 2024 kl. 19:44 – uppfært

Þórður Gunnar með tvennu

Fylkismenn eru búnir að snúa leiknum gegn HK sér í vil eftir að hafa lent undir snemma leiks. Þórður Gunnar Hafþórsson skoraði bæði mörkin og Árbæingar leiða nú 2-1. Mörkin komu á 11. og 21. mínútu.

16. maí 2024 kl. 19:43 – uppfært

Leikur er hafinn

Leikurinn er farinn af stað í Garðabæ. Sólin skín á völlinn en líkt og áður er skuggi í stúkunni. KRingar pressa Stjörnuna í upphafi.

Guy Smit er snúinn aftur í rammann en Sigurpáll Sören Ingólfsson lék síðasta leik KR í deild.

Markalaust er eftir 12 mínútna leik.

Byrjunarlið Stjörnunnar

Mathias Rosenörn (markvörður)

Óli Valur Ómarsson

Guðmundur Kristjánsson (fyrirliði)

Sindri Þór Ingimarsson

Örvar Eggertsson

Jóhann Árni Gunnarsson

Hilmar Árni Halldórsson

Guðmundur Baldvin Nökkvason

Emil Atlason

Örvar Logi Örvarsson

Róbert Frosti Þorkelsson

Byrjunarlið KR

Guy Smit (markvörður)

Axel Óskar Andrésson

Alex Þór Hauksson

Finnur Tómas Pálmason

Kristján Flóki Finnbogason

Ægir Jarl Jónasson

Theodór Elmar Bjarnason (fyrirliði)

Luke Rae

Aron Kristófer Lárusson

Atli Sigurjónsson

Rúrik Gunnarsson

16. maí 2024 kl. 19:26

Bein útsending farin í loftið

Það styttist í leik Stjörnunnar og KR í Garðabænum.

Bein útsending er á RÚV2 en leikurinn hefst 19:30.

KR vann einvígi liðanna í Bestu deild karla fyrir skemmstu, 1-3. Síðan þá er liðinn mánuður en Stjarnan hefur unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli. KRingar hafa hins vegar tapað þremur leikjum og gert eitt jafntefli.

HKingar eru komnir yfir gegn Fylki eftir mark Eiðs Gauta Sæbjörnssonar eftir fimm mínútna leik. Eiður Gauti gekk til liðs við HK frá venslaliði þeirra Ými, sem leika í 4. deild.

16. maí 2024 kl. 19:19

Tveir aðrir leikir farnir af stað

Á sama tíma og seinni hálfleikur í Keflavík var flautaður á hófust leikar í Árbæ og í Safamýri.

Grindavík og Víkingar mætast í Safamýri en Fylkir tekur á móti HK í Árbæ. Markalaust er í upphafi leiks.

Nú er spurning hvað tíu menn ÍA gera gegn Keflavík. Keflavík leiðir enn 2-1 í upphafi seinni hálfleiks.

16. maí 2024 kl. 19:06

Keflavík leiðir í hálfleik

Sami Kamel er búinn að vera ansi drjúgur í kvöld. Eftir gott samspil Kelfvíkinga stýrði Svíinn fyrirgjöf Dags Inga Valssonar í netið af stuttu færi. Dómarinn hefur flautað til hálfleiks og Keflvíkingar eru með forskotið, 2-1.

ÍA voru við stjórnvölinn fram að rauða spjaldinu. Hinrik Harðarson brenndi af afbragðs færi er hann var búinn að fara fram hjá Ásgeiri Orra í markinu. Honum brást hins vegar bogalistin.

16. maí 2024 kl. 18:52 – uppfært

Keflvíkingar jafna - ÍA fær rautt

Sami Kamel jafnar af vítapunktinum á 34. mínútu. Erik Tobias Sandberg fékk beint rautt spjald fyrir að toga Sami niður. Erik átti arfaslaka sendingu til baka sem Sami komst inn í.

Vítaspyrnan var gríðarlega örugg. Staðan er nú 1-1.

16. maí 2024 kl. 18:19

Leikur hafinn í Keflavík

Leikurinn er farinn af stað suður með sjó í Keflavík. Það tók Hinrik Harðarson ekki nema fjórar mínútur til að brjóta ísinn fyrir Skagamenn. Þeir leiða í upphafi leiks.

16. maí 2024 kl. 17:39 – uppfært

Spila á útivelli sem er heimavöllur

Leikur Keflavíkur og ÍA hefst klukkan 18:15. Því næst taka við leikir Fylkis gegn HK og Grindavíkur gegn Víkingum. Þeir leikir hefjast klukkan 19:15.

Kvöldinu lýkur svo með leik Stjörnunnar gegn KR, en sá leikur er í beinni útsendingu á RÚV2. Útsending hefst klukkan 19:20 en leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:30.

ÍA er í Bestu deild karla en Keflavík deild neðar eftir fall á síðasta tímabili. Keflvíkingar slógu hins vegar Breiðablik út í 32 liða úrslitum og eru til alls líklegir.

Í Árbænum verður Bestu deildar slagur er Fylkir og HK mætast. Fylkir vann Hött/Huginn 0-1 fyrir austan en HK vann Þróttara 1-2 í Laugardalnum.

Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, og Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, voru kátir þegar þeir handsöluðu samkomulagið á Víkingssvæðinu í Safamýri í dag.
Róbert Róbertsson
Frá afhendingu vallarins til Grindvíkinga í sumar

Útivöllurinn sem er heimavöllur - hvað gerist í Safamýri?

Ríkjandi bikarmeistarar Víkinga sækja Grindavík svo heim, en leikurinn fer fram í Safamýri. Það sem er athyglisvert þar er að Víkingar hafa tekið við íþróttaaðstöðunni í Safamýri, af Fram. Grindvíkingar hafa fengið völlinn að láni og eru í samstarfi við Víkinga, þar sem þeir gulklæddu geta ekki leikið heimaleiki sína í Grindavík.

Því spila Víkingar í raun á heimavelli í kvöld, þó á útivelli séu.

Grindvíkingar slógu Valsara út í fyrra og eru til alls líklegir. Grindavík vann ÍBV 1-2 í Eyjum í 32 liða úrslitum. Víkingar unnu öruggan sigur gegn Víði. Liðsmenn Arnars Gunnlaugssonar hafa verið í áskrift þegar að bikartitlum kemur. Liðið vann 2019, 2021, 2022 og 2023. Árið 2020 tapaði liði gegn Stjörnunni og datt úr leik. Bikarinn var hins vegar ekki kláraður vegna 2019. En því hefur ekkert annað lið lyft bikarnum en Víkingar frá 2019. Liðið hefur þar að auki ekki tapað í bikarnum frá 30. júlí 2020.