FH jafnaði einvígið í Mosfellsbæ
Annar leikur úrslitaeinvígis Aftureldingar og FH í Olísdeild karla í handbolta fór fram í kvöld þar sem Hafnfirðingar höfðu betur, 27-28, og þar með er jafnt í einvíginu, 1-1. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari.
Heimamenn í Aftureldingu byrjuðu leikinn ögn betur en fljótlega tóku FH-ingar völdin og voru komnir þremur mörkum yfir um miðjan fyrri hálfleikinn. Afturelding missti þá þó ekki lengra frá sér og munurinn í hálfleik var tvö mörk, 13-15.
Gestirnir skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiksins en þá svöruðu Mosfellingar með fjórum mörkum í röð og leiddu, 17-16. Jafnt var á flestum tölum það sem eftir lifði leiks en FH-ingar unnu að lokum með minnsta mun, 27-28.
Símon Michael Guðjónsson og Jóhannes Berg Andrason voru markahæstir í liði FH með 7 mörk og Aron Pálmarsson, sem missti af fyrsta leiknum vegna meiðsla, skoraði 6. Þorsteinn Leó Gunnarsson var markhæstur heimamanna með 7 mörk.
Næsti leikur liðanna verður á sunnudaginn í Kaplakrika.